Dúbbí dú.... héðan er allt gott að frétta.... alltaf sama vonda
veðrið eða þannig, reyndar finnst mér þetta veðurfar ekkert alltof
sniðugt... ekki alveg minn tebolli en maður lætur sig hafa það til
þess að geta eitt tíma með góðum vinum, hvað leggur maður ekki á
sig fyrir vini sína
(Helena á eftir að minna mig á þetta þegar
ég hringi vælandi úr 3° og 18 m/s á íslandi) Það er allt að
smella hjá hjónakornunum hér í Jardín de San Miguel 6 nema að þau
eru ekki búin að fjárfesta í sjónvarpi
ég er ekki alveg að ná
þessu..... hvernig er hægt að lifa án sjónvarps í nokkra daga? ég
er allavegana komin með útbrot á bakið vegna
sjónvarpsleysis!!!!!!
Helena og Skúli eiga alveg ótrúlega skemmtilega nágranna, tvær
ekta breskar kellingar á besta aldri (þær eiga líka menn en þeir
sjást ekki) þær hittast alltaf úti í garði nokkrum sinnum á hverju
kvöldi og rabba saman um EKKI NEITT og þær tala alveg ógeðslega
mikiðu um EKKI NEITT!!!! Þetta er eins og að vera staddur í mijum
East Enders þætti... þær eru samt dúllur, þær buðu mér og helenu í
göngutúr núna áðan, ég afþakkaði vegna þess að ég var ennþá á
bikinibrókinni (þetta hafði EKKERT með það að gera að önnur þeirra
á tvo hunda sem ætluðu með í túrinn) Helena er ennþá með þeim í
göngutúr og ég held að hún hafi bara endað með þeim á einhverjum
pöbb

Ég og Helena fórum áðan og keyptum síma, fékk þennan fína
nokia síma á 60 evrur, ég sagði við kallinn í búðinni að ég
þyrfti bara einhven ódýran síma því ég væri alltaf að eyðileggja
eða týna þeim. Þegar við vorum komnar út úr búðinni og vorum
alveg að verða komnar að bílnum hristi ég pokann og
segji í gamni ,, er síminn ekki örugglega hérna ofan í"
og afþví Helena þekkir mig eitthvað aðeins þá sagði hún mér að
athuga það almennilega........ Þá var enginn sími í
pokanum!!!!!!!!! ég hljóp til baka og mæti búðarmanninum í dyrunum,
skellihlægjandi með símann í hendinni
...... kemur ekki
örugglega einhvern tímann að því að símar verða bara litlir
tölvukubbar sem eru græddir bak við eyrað á manni????? ég ætti ekki
að geta týnt því !!!!
Ég uppgvötaði líka eitt nýtt í þessari viku það er víst hægt að
fá kvef og hálsbólgu á sólarströnd...... nema ég sé eitthvað
læknisfræðilegt undur.......
Jæja nóg komið í bili, verð að fara að kæla mig niður með
svaladrykk 