Kjánaprik

Welcome

08.08.2007 14:26:16 / Anna

Home sweet home

Æ hvað það er gott að vera komin heim þrátt fyrir að það hafi verið mjög erfitt að fara frá tenerife :(
Allt var á sínum stað heima og blessaðar skjaldbökurnar á lífi :)


Ég er búin að vera ótrúlega róleg síðan ég kom heim, gerði ekkert og fór ekkert um versló (nema í kántrýbæ, jibbí!). Mamma og pabbi buðu mér að koma með til Drangsnes á sunnudaginn en ég nennti ekki, sé ótrúlega mikið eftir því því það er alltaf svo gaman þar og það er allt of langt síðan ég fór síðast :( OG ég hef ekkert ferðast um landið þetta sumarið!!!  Ég er þess vegna búin að ákveða að fara á morgun með þeim gömlu (og saumaklúbbnum hennar mömmu) í fjallaleiðangur á trukknum hans pápa. Veit ekki alveg hvert við erum að fara, allavegana yfir Kjöl og svo í Grímsnesið og svo upp einhverstaðar hjá Hellu, upp að einhverri virkjun og veit ekki meir (ein með ALLT Á HREINU). 

 Loksins er sim-kortið komið svo ég er  búin að fá gemsanúmerið mitt aftur en það eru náttúrulega engin númer á þessu korti þannig að ef einhver hringir og ég veit ekkert hver það er þá er bannað að vera sár því ég kann eiginlega engin símanúmer utanað ;)

Annars er ekki mikið að frétta hjá mér nema að ég byrja að vinna næsta þriðjudag :) ég er alveg ótrúlega spennt að byrja aftur að vinna, samt er þetta sumar búið að líða ekkert smá hratt!!!!

Elva kemur líka frá DK í næstu viku og ég hlakka ótrúlega mikið að hitta hana enda hittumst við allt of sjaldan :cry:

Jæja nóg komið af bulli, allir að drífa sig út og kreista síðustu dropana sem eftir eru af þessu sumri ;) :haha: kiss kiss

Helena Bjarndís skrifaði
Góða skemmtun með múttu þinni og co Love you
Sigrún skrifaði
Jæja gamla, hvenær á svo að skella sér til borgarinnar og hitta gamla MH-gengið, það er svo langt síðan maður hefur séð þig að það liggur bara við að maður sé búin að gleyma hvernig þú lítur út!!!!!
Anna skrifaði
Helena: Takk elskan, það var ÓGEÐSLEGA gaman :D Sigrún: Heyrðu skellurinn kemur 27. ágúst til borgarinnar og verður í 5 daga ;) Ég verð nú að fá að sjá þig með bumbu :)
Helena Bjarndís skrifaði
Hey ég gleymdi að minnast á það en ég fann demanta sólgleraugun þín og ég skal lofa að passa þau ROSA vel þar til ég kem þeim áleiðis til þín elskan mín love you
Anna skrifaði
Oh my gggggooooooodddddddddd *smá gleðitár* ji hvað ég hlakka til að fá þau! spurning hvort ég splæsi ekki bara á þau flugsæti heim hehe Love You man
Guðrún Elsa skrifaði
Jæja skvís, fer þig nú ekki að vanta bækur á góðu verði fyrir næstu törn í kennó ? Endilega hafðu samband þegar þú sérð hvað þig vantar Kv.
Helena Bjarndís skrifaði
Hey það er farið að vanta smá blogg!!!!!
Berglind skrifaði
Sammála Helenu. Hvernig var borgin t.d.??
miss bissí skrifaði
æji það er bara svo mikið að gera!!!! of mikið til þess að hægt sé að blogga.... sjáum til í jólafríinu :D
Helena Bjarndís skrifaði
Hey ég er búin að blogga, nú er komið að þér elskan mín ;-)
GUNNAR ÖRN FRÆNDI skrifaði
ANNA...... ANNA...... úff held að það heyrist ekkert í mér......... Ertu alveg hætt að blogga???

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagar til Tene
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 981 dögum
Myndasíður